Nokia 5070 - Öryggisatriði

background image

Öryggisatriði

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt eða varðað við lög. Lesa skal alla
notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU

Ekki kveikja á símanum þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð eða þar sem hún kann að valda truflunum eða
hættu.

UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR

Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar til að stýra ökutækinu við akstur.
Umferðaröryggi skal ganga fyrir í akstri.

TRUFLUN

Allir þráðlausir símar geta verið næmir fyrir truflunum, sem getur haft áhrif á virkni þeirra.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM Á SJÚKRASTOFNUNUM

Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á símanum nálægt lækningabúnaði.

HAFA SKAL SLÖKKT Á SÍMANUM Í FLUGVÉLUM

Virða skal allar takmarkanir. Þráðlaus tæki geta valdið truflunum í flugvélum.

SLÖKKT SKAL Á SÍMANUM ÁÐUR EN ELDSNEYTI ER TEKIÐ

Ekki nota símann nærri eldsneytisdælu. Notist ekki í námunda við eldsneyti eða sterk efni.

SLÖKKVA SKAL Á SÍMANUM ÞAR SEM VERIÐ ER AÐ SPRENGJA

Virða skal allar takmarkanir. Ekki nota símann þar sem verið er að sprengja.

NOTIST AF SKYNSEMI

Notist aðeins í hefðbundinni stöðu eins og lýst er í leiðbeiningum með vörunni. Forðast skal óþarfa snertingu við
loftnetið.

background image

10

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

VIÐURKENND ÞJÓNUSTA

Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR

Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.

VATNSHELDNI

Símtækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

ÖRYGGISAFRIT

Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar sem geymdar eru í símanum.

TENGING VIÐ ÖNNUR TÆKI

Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók með því vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki
má tengja saman ósamhæf tæki.

NEYÐARSÍMTÖL

Tryggja skal að kveikt sé á símanum og hann sé virkur. Styðja skal á hætta-takkann eins oft og þarf til að hreinsa
skjáinn og hverfa aftur að upphafsskjánum. Neyðarnúmerið er valið, síðan er stutt á hringitakkann. Gefa skal upp
staðarákvörðun. Ekki má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

Um tækið

Þráðlausa tækið sem lýst er í þessari handbók er samþykkt til notkunar á EGSM 900 og GSM 1800 og 1900 símkerfunum.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.

Hlíta skal öllum lögum og virða einkalíf og lögbundin réttindi annarra við alla notkun þessa tækis.

Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á
tækinu þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða hættu.

background image

11

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.

Sérþjónusta

Ef nota á símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma að vera fyrir hendi. Margar aðgerðir í þessu tæki eru
háðar því að aðgerðir í þráðlausa símkerfinu virki. Þessi sérþjónusta er hugsanlega ekki fyrir hendi í öllum símkerfum eða þörf
getur verið á sérstökum ráðstöfunum hjá þjónustuveitunni áður en hægt er að nota sérþjónustu. Þjónustuveitan getur þurft
að gefa viðbótarfyrirmæli um notkun og útskýra hvaða gjöld eiga við. Sum símkerfi geta verið með takmörkunum sem hafa
áhrif á hvernig hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi og þjónustu.

Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er
birtast þær ekki í valmynd tækisins. Tækinu kann einnig að hafa verið sérstaklega samskipað fyrir símakerfið. Þessi samskipan
kann að fela í sér breytingar á valmyndarheitum, röð valmynda og táknum. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Þetta tæki styður WAP 2.0 samskiptareglur (HTTP og SSL) sem keyra á TCP/IP samskiptareglum. Sumar aðgerðir þessa tækis,
svo sem textaskilaboð, margmiðlunarboð, raddboð, spjallþjónusta, tölvupóstur, viðverutengdir tengiliðir, Internetþjónusta,
niðurhal efnis og forrita og samstilling við fjartengdan Internetmiðlara, krefjast stuðnings símkerfis við þessa tækni.

Samnýtt minni

Í símanum eru tvö minni. Eftirfarandi aðgerðir geta samnýtt fyrra minnið: tengiliðir, textaskilaboð, margmiðlunarboð (en
ekki viðhengi), raddboð, spjall, hópar, raddskipanir, dagbók og verkefnapunktar. Hitt samnýtta minnið nota skrár sem eru
geymdar í

Gallerí

, viðhengi margmiðlunarboða, tölvupóstur og Java

TM

-forrit. Notkun einnar eða fleiri þessara aðgerða getur

minnkað tiltækt minni fyrir aðrar aðgerðir sem samnýta minni. Til dæmis getur vistun margra Java-forrita notað allt tiltækt
minni. Tækið getur birt boð um að minnið sé fullt þegar reynt er að nota aðgerð sem notar samnýtt minni. Þá skal eyða
einhverjum upplýsingum eða færslum sem eru geymdar í aðgerðunum sem samnýta minni áður en haldið er áfram. Sumar
aðgerðirnar, svo sem textaskilaboð, geta fengið tiltekið magn af minni úthlutað í viðbót við minni sem er samnýtt með
öðrum aðgerðum.

Aukahlutir

Nokkur holl ráð varðandi fylgibúnað og aukahluti:

Alla aukahluti og fylgibúnað skal geyma þar sem lítil börn ná ekki til.

Þegar aukahlutur eða fylgibúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

Athuga skal reglulega hvort aukahlutir fyrir bíla séu vel festir og vinni rétt.

Uppsetningu flókinna aukahluta í bíla skal fela fagmönnum.

background image

12

Copyright

© 2006 Nokia. All rights reserved.