Nokia 5070 - Rafhlaðan hlaðin

background image

Rafhlaðan hlaðin

Viðvörun: Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukahluti sem Nokia hefur samþykkt til nota með þessari
tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt
hætta.

Athuga ber tegundarnúmer hleðslutækja áður en þau eru notuð með þessu tæki. Þetta tæki er ætlað til notkunar
þegar það er hlaðið orku frá AC-3, AC-4, AC-5 og DC-4 hleðslutæki og frá LCH-9 hleðslutæki ef notað er CA-44
millistykki fyrir hleðslutæki.

Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlega aukahluti sem samþykktir eru til notkunar. Þegar aukahlutur er
tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.

1. Stingdu hleðslutækinu í samband í innstungu.

2. Stingdu snúru hleðslutækisins í samband neðst á símanum.

Ef rafhlaðan er alveg tæmd geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist
á skjánum eða þar til hægt er að hringja.

Hleðslutíminn fer eftir hleðslutækinu og rafhlöðunni. Það tekur t.d. um 1 klst. og
10 mín. að hlaða BL-5B rafhlöðu með AC-3 hleðslutæki þegar síminn er í biðham.