
Innrauð tenging
Hægt er að senda eða taka á móti gögnum úr samhæfum síma eða gagnatæki (t.d. tölvu) um innrautt tengi
símans. Ef nota á innrautt tengi verður tækið sem á að tengjast að vera IrDA-samhæft.
Ekki beina innrauðum geisla að augum eða láta hann trufla önnur innrauð tæki. Innrauð tæki eru leysitæki í flokki 1 (Class 1
laser products).
Þegar gögn eru flutt um innrauð tengi þarf að ganga úr skugga um að innrauð tengi sendi- og móttökutækisins
snúi hvort að öðru og að engar hindranir séu á milli þeirra.
Ef gera á innrautt tengi símans virkt þannig að hægt sé að senda og taka á móti gögnum skal velja
Valmynd
>
Stillingar
>
Tengimöguleikar
>
Innrautt
.
Slökkt er á innrauða tenginu með því að velja
Valmynd
>
Stillingar
>
Tengimöguleikar
>
Innrautt
. Þegar
síminn birtir
Aftengja innrauða?
skaltu velja
Já
.
Ef gagnaflutningur hefst ekki innan tveggja mínútna eftir að innrauða tengið er gert virkt er tengingin rofin og
því þarf að koma henni á aftur.

58
Copyright
© 2006 Nokia. All rights reserved.